Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 12. febrúar 2020 08:00
Aksentije Milisic
Framkvæmdastjóri Liverpool tjáir sig um hugmyndina að fá Gerrard
Mynd: Getty Images
Peter Moore, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur talað niður til hugmyndarinnar að liðið ætti kaupa Steven Gerrard til liðsins svo að hann geti lyft enska titlinum.

Sumir af stuðningsmönnum Liverpool voru með hugmynd um að fá goðsögnina Gerrard aftur til liðsins sem leikmann en hann stjórnar liði Rangers í Skotlandi. Þessir menn vilja að Gerrard spili þessa fimm leiki sem til þarf til þess að fá medalíu en Gerrard tókst aldrei að vinna deildina á sínum tíma hjá Liverpool.

„Spurningin yrði, hvaða leikmanni ætlaru að fórna úr hópnum svo Gerrard geti komið inn? Ef þú hefur ekki tekið eftir því, þá er hann í starfi hjá öðru knattspyrnuliði," sagði Moore í viðtali.

„Við elskum öll Gerrard og erum mjög stolt af því sem hann er að gera sem þjálfari. Ég hef heyrt að við ættum að fá hann inn í fimm leiki svo hann get fengið medalíu. En þetta gerist ekki svoleiðis. Það er ekki eins og allir fá medalíur, þú ert með leikmannahóp. Þú getur ekki bætt leikmanni inn í hópinn eftir að hann er læstur. Fyrir utan þetta, þá væri þetta möguleiki."

Liverpool þarf einungis sex sigurleiki í viðbót til þess að gulltryggja sér dolluna stóru.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner