Liverpool er sagt hafa skoðað það að kaupa Philippe Coutinho til baka frá Barcelona síðasta sumar áður en hann gekk til liðs við Bayern Munchen á láni.
Félagið seldi Coutinho til Barcelona fyrir 145 milljónir punda í janúar árið 2018 en þessi 27 ára gamli leikmaður náði sér ekki á strik hjá Börsungum.
Félagið seldi Coutinho til Barcelona fyrir 145 milljónir punda í janúar árið 2018 en þessi 27 ára gamli leikmaður náði sér ekki á strik hjá Börsungum.
Síðasta sumar senti Barcelona Coutinho á lán til Bayern Munchen en áður en að þau skipti urðu að veruleika þá talaði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, við Michael Edwards, yfirmann knattspyrnumála, um þann möguleika á að fá Coutinho til baka.
Coutinho hefur skorað 7 mörk og lagt upp 8 á þessu tímabili hjá Bayern Munchen en hann er sagður ekki vilja snúa aftur til Barcelona eftir tímabilið. Bayern hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort liðið ætli sér að halda leikmanninum.
Athugasemdir