Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 12. febrúar 2020 13:00
Elvar Geir Magnússon
Milik sektaður fyrir leikaraskap
Arkadiusz Milik
Arkadiusz Milik
Mynd: Getty Images
Aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins hefur ákveðið að sekta Arkadiusz Milik, sóknarmann Napoli, fyrir að taka dýfu í leik liðsins gegn Lecce.

Atvikið átti sér stað á 73. mínútu og þó smávægileg snerting hafi átt sér stað þótti Milik ýkja atvikið mikið til að reyna að blekkja dómarann.

Pólski landsliðsmaðurinn fékk gula spjaldið frá dómara leiksins.

Milik skoraði í leiknum en gat ekki komið í veg fyrir 3-2 tap og Napoli er í 11. sæti eftir 23 leiki.

Milik er sektaður um 2.000 evrur, rúmlega 275 þúsund íslenskar krónur. Hann ætti ekki að vera í vandræðum með að borga það.
Athugasemdir
banner
banner