Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. febrúar 2020 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stuðningsmaður Celtic í fangelsi fyrir að kýla þrjá lögregluhesta
Mynd: Getty Images
Knattspyrnubulla sem er stuðningsmaður Celtic var í dag dæmdur í fangelsi.

Stuðningsmaðurinn var dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að kýla þrjá lögregluhesta fyrir leik Celtic gegn Airdrie í skosku bikarkeppninni.

Stuðningsmaðurinn heitir Kevin McGuire og sagði fyrir rétti hafa verið saklaus áhorfandi þegar hópur stuðningsmanna réðst að lögreglu fyrir bikarleikinn.

Lögreglustjórinn John McCormick sagði Kevin hins vegar hafa verið einn af höfuðpaurunum í árásinni.

McGuire hafði áður verið bannaður frá öllum leikvöngum í Bretlandi. Hann var fundinn sekur fyrir að særa þrjá lögregluhesta og tvo lögreglumenn. Hann stóð þá einnig í hótunum við starfsfólk lögreglu.

Auk fangelsisvistarinnar var bann McGuire frá leikvöngum í Bretlandi lengt um fimm ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner