Það eru tveir nágrannaslagir á dagskrá í Lengjubikarnum í kvöld. í A-deild eigast KA og Magni við á meðan Njarðvík og Víðir mætast í B-deild.
KA fær Grenvíkinga í heimsókn í Bogann og eru heimamenn hungraðir í sigur eftir tvo tapleiki í röð.
KA er með fjögur stig eftir fjórar umferðir á meðan Magnamenn eru búnir að tapa sínum þremur leikjum og með -17 í markatölu.
Njarðvík tekur þá á móti Garðsmönnum í Reykjaneshöllinni. Njarðvík er búið að vinna báða sína leiki og þarf sigur til að jafna Kórdrengi á stigum á toppi riðilsins.
Víðir er með fjögur stig eftir þrjár umferðir.
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 2
20:00 KA-Magni (Boginn)
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 1
18:30 Njarðvík-Víðir (Reykjaneshöllin)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir