Fotbolti.net
12.04.26 - 17:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Romero með tárin í augunum er hann yfirgaf völlinn

Cristian Romero.

Cristian Romero.

Canon

Mynd: EPA

Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, fór af velli með tárin í augunum þegar Spurs tapaði 1-0 gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.

Romero lenti í samstuði við Antonin Kinsky, markvörð Tottenham, á 64. mínútu og var löng pása á leiknum eftir það.
England: Tap í fyrsta leik De Zerbi - Dramatískt sigurmark í London
TENGT EFNI

England: Tap í fyrsta leik De Zerbi - Dramatískt sigurmark í London

Romero gat ekki haldið leik áfram og átti erfitt með tilfinningarnar.

„Ég vona að þetta sé ekki alvarlegt því hann er lykilmaður fyrir okkur," sagði Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, um Romero eftir leikinn en miðað við viðbrögð Romero er þetta alvarlegt.

Romero talaði um það fyrir leikinn að hann ætlaði að gera allt til þess að hjálpa Tottenham að forðast fall. Liðið er tveimur stigum frá öruggu sæti eftir leikinn í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.