Fotbolti.net
12.04.26 - 23:36
Alexander Tonini

Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur

Auglýsing
Sigurjón í baráttunni við Viktor Jónsson framherja ÍA

Sigurjón í baráttunni við Viktor Jónsson framherja ÍA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

„Mér fannst við vera flottir fyrir utan kannski 10 mínútna kafla, þar sem þeir skora þrjú mörk. Annars voru við ekki að gefa mörg færi á okkur", sagði Sigurjón Rúnarsson eftir leik þar sem Fram tókst að koma til baka undir 1-3 og jafna leikinn.

Vörn Framara og þá kannski sérstaklega Kyle McLagan átti í vandræðum með hraðann á Markúsi Páli í leiknum.

„Við vorum aular að koma honum í þessar stöður, áttum að stoppa þetta fyrr""
Lestu um leikinn: Fram 3 - 3 ÍA
Sigurjón hefur verið að glíma við meiðsli allt þetta ár og var utan hóps í síðustu viku þegar Fram datt úr Mjólkurbikarnum gegn Víkingi.

„Ég er bara sáttur með að hafa náð að klára 90 mínútur. Ég er búinn að vera frá síðan í janúar og í raun bara fyrsta æfingin núna fyrir þennan leik""

Sigurjón minnkaði muninn í 2-3 á 76. mínútu fyrir Framara og það mark var kveikjan að endurkomu þeirra.

„Það er alltaf gaman að skora, maður er í þessu til að skora og vinna leiki", sagði Sigurjón að leikslokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.