Fotbolti.net
12.05.24 - 17:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Trossard skaut Arsenal á toppinn

Trossard fagnar marki sínu í dag

Trossard fagnar marki sínu í dag

Canon

Mynd: EPA

<b>Manchester Utd 0 - 1 Arsenal</b>
0-1 Leandro Trossard ('20 )

Leandro Trossard tryggði Arsenal sigur gegn Man Utd á Old Trafford og kom liðinu á toppinn.

Man Utd fékk fyrsta tækifæri leiksins þegar Rasmus Hojlund var í góðu færi en hitti boltann illa.

Eftir tuttugu mínútna leik fékk Kai Havertz boltann aleinn á miðjum vallarhelmingi Man Utd en Casemiro var lengi að koma sér fram völlinn og gerði hann réttstæðan.

Havertz komst inn á teiginn og lagði boltann á Trossard sem skoraði að miklu öryggi.

Amad Diallo féll í teignum eftir viðskipti við Thomas Partey í fyrri hálfleiknum en ekkert dæmt. Bæði lið fengu tækifæri til að skora í þeim síðari en niðurstaðan 1-0 sigur Arsenal.

Man Utd er nú þremur stigum á eftir Newcastle í baráttunni um sæti í Sambandsdeildinni þegar tvær umferðir eru eftir.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.