Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
banner
   þri 12. maí 2026 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Það verða allir Grindvíkingar í minni fjölskyldu á morgun"
'Um leið og leikurinn byrjar þá er ég leikmaður Grindavíkur og ætla að vinna þennan leik og ekkert annað kemst að'
'Um leið og leikurinn byrjar þá er ég leikmaður Grindavíkur og ætla að vinna þennan leik og ekkert annað kemst að'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Auðvitað verður skrítið að spila á móti ÍA á vellinum sem maður mætti alltaf á sem strákur til að horfa á liðið og endaði svo á að spila helling af leikjum þarna'
'Auðvitað verður skrítið að spila á móti ÍA á vellinum sem maður mætti alltaf á sem strákur til að horfa á liðið og endaði svo á að spila helling af leikjum þarna'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þurfum að mæta með fullt sjálfstraust inn í leikinn eins og við gerðum í leiknum gegn Keflavík'
'Þurfum að mæta með fullt sjálfstraust inn í leikinn eins og við gerðum í leiknum gegn Keflavík'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég held þeir þurfi smá tíma til að læra inn á hvorn annan og þegar það gerist þá fer þetta að rúlla'
'Ég held þeir þurfi smá tíma til að læra inn á hvorn annan og þegar það gerist þá fer þetta að rúlla'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Á morgun tekur ÍA á móti Grindavík í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á ELKEM-vellinum á Akranesi.

Ingi Þór SIgurðsson er leikmaður Grindavíkur en hann er uppalinn hjá ÍA. Hann var lánaður til Grindavíkur á síðasta tímabili og var í vetur keyptur til félagsins frá ÍA. Hann lék með meistaraflokki ÍA á árunum 2020-2024.

Ingi svaraði spurningum Fótbolta.net.

Auðvitað skrítið að mæta ÍA á Akranesvelli
„Mér líst bara mjög vel á það að mæta ÍA, verður gaman að bera okkur saman við Bestu deildar lið og sjá hvar við stöndum, og auðvitað gaman að mæta aftur upp á Skaga," segir Ingi.

„Ég reyni að líta á þetta eins og hvern annan leik, en auðvitað verður skrítið að spila á móti ÍA á vellinum sem maður mætti alltaf á sem strákur til að horfa á liðið og endaði svo á að spila sjálfur helling af leikjum þarna. En um leið og leikurinn byrjar þá er ég leikmaður Grindavíkur og ætla að vinna þennan leik og ekkert annað kemst að."

Þurfa að hafa trú frá fyrstu mínútu
Við hvernig leik má búast?

„Ég býst við hörkuleik, á þessu grasi þá snýst þetta mikið um baráttu og vilja þar sem flæðið á boltanum er ekki eins og á gervigrasinu. En það eru hellingsgæði í báðum liðum og ég býst við góðum fótboltaleik."

Hvað þurfið þið í Grindavík að gera til að ná í góð úrslit?

„Við þurfum að trúa á verkefnið frá byrjun og mæta með fullt sjálfstraust inn í leikinn eins og við gerðum í leiknum gegn Keflavík (í 32- liða úrslitunum)."

Fjölskyldan heldur með Grindavík á morgun
Með hvoru liðinu er fjölskyldan að fara halda?

„Það verða allir Grindvíkingar í minni fjölskyldu á morgun."

Svekktur að vera ekki með fleiri stig
Grindavík er með þrjú stig eftir þrjá leiki í Lengjudeildinni, liðið hefur gert jafntefli í öllum leikjunum. Hvernig líður þér með byrjunina hjá ykkur á tímabilinu?

„Ég er svekktur að vera ekki með fleiri stig en við höfum sýnt það strax að við erum með hörku lið, við höfum verið að eiga slaka hálfleiki í öllum leikjunum hingað til og núna þurfum við að tengja saman góðar 90 mínútur, þá fara sigrarnir að detta inn."

Finnst þér sanngjarnt að þið séuð með stig úr öllum leikjunum?

„Já og í raun og veru hefði ég viljað allavega einn sigur, við vorum með Njarðvík í köðlunum fannst mér í seinni hálfleik og hefðum átt að ná marki á þá og svo gegn ÍR þá erum við að klúðra dauðafærum í fyrri hálfleik sem hefði getað hjálpað okkur að vinna leikinn."

Þurfa tíma til að læra inn á hvorn annan
ÍA er með fimm stig eftir sex leiki í Bestu deildinni. Hvernig sér byrjun ÍA á sínu tímabili við þér?

„Ég bjóst við fleiri stigum eins og þeir gera held ég sjálfir bara, þetta er nýtt lið og leikmenn sem hafa ekki spilað mikið saman en þetta eru allt frábærir leikmenn. Ég held þeir þurfi smá tíma til að læra inn á hvorn annan og þegar það gerist þá fer þetta að rúlla," segir Ingi.
Slapp
banner
banner
banner
banner