Fotbolti.net
12.06.19 - 17:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

HM kvenna: Ákefð Dabritz tryggði Þýskalandi sinn annan sigur

HM kvenna: Ákefð Dabritz tryggði Þýskalandi sinn annan sigur
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
<b>Þýskaland 1-0 Spánn</b>
1-0 Sara Dabritz ('42 )

Einn leikur fór fram í dag í B-riðli á HM kvenna. Þýskaland mætti Spáni í Valenciennes.

Spánn hélt boltanum töluvert meira í kvöld eða rétt tæp 60%. Það skilaði sér ekki í fleiri skotum á markið því þær þýsku áttu átta skot á mark á móti aðeins tveimur frá þeim spænsku.
Aðeins eitt mark lét dagsins ljós í leiknum í kvöld. Sara Dabritz gerði það á 42. mínútu. Markið kom eftir góða fyrirgjöf frá hægri, Sandra Panos varði vel góðan skalla en Dabritz sýndi mikla ákefð og náði að fylgja eftir frákastinu og skora.

Þýskaland vann því sinn annan leik á mótinu, báðir hafa endað 1-0.

Suður Afríka mætir Kína á morgun í sama riðli.
HM kvenna: Ákefð Dabritz tryggði Þýskalandi sinn annan sigur
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.