Danska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að leikur Danmerkur og Finnlands á Evrópumótinu muni fara aftur af stað klukkan 18:30 að íslenskum tíma.
Leikurinn var stöðvaður undir lok fyrri hálfleiks þegar Christian Eriksen hneig til jarðar.
Það þurfti að flytja Eriksen á sjúkrahús en líðan hans er núna stöðug og hann er vakandi.
Síðustu fimm mínútur af fyrri hálfleik verða spilaðar og seinni hálfleikurinn svo.
Það var ákveðið að halda áfram með leikinn eftir að það komu fréttir um að það væri allt í lagi með Eriksen.
Leikur Belgíu og Rússlands hefst svo klukkan 19:00, en sá leikur er í sama riðli.
Christian Eriksen er vågen, og hans tilstand er fortsat stabil. Han forbliver indlagt på Rigshospitalet til yderligere undersøgelser.
— DBU - En Del Af Noget Større (@DBUfodbold) June 12, 2021
Kampen mod Finland spilles færdig i aften. Dette sker efter at spillerne har fået bekræftet, at Christian er okay. Kampen genoptages kl. 20.30.
Athugasemdir