Miðjumaðurinn Aron Ingi Magnússon (2004) meiddist illa á fyrstu æfingu Þórsara eftir landsleikjahlé og verður ekki aftur með fyrr en í ágúst.
Í fyrstu var óttast að krossband í hné væri slitið, hnéð fór í mikla yfirréttu og voru afleiðingarnar þær að brot kom í sköflunginn. Aron er á hækjum og verður frá næstu sex vikurnar hið minnsta.
Í fyrstu var óttast að krossband í hné væri slitið, hnéð fór í mikla yfirréttu og voru afleiðingarnar þær að brot kom í sköflunginn. Aron er á hækjum og verður frá næstu sex vikurnar hið minnsta.
„Þetta leit mjög illa út þegar þetta gerðist á æfingu, héldum að hann hefði slitið krossband, en sem betur fer er ekkert slitið. En það er smá brot/sprunga efst í leggnum fyrir neðan hnéð. Hann getur líklega byrjað að hjóla eftir viku og við erum að vonast eftir því að hann verði klár í ágúst og teljum það raunhæft markmið," segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, í samtali við Fótbolta.net.
Það er ljóst að Þórsarar verða án þriggja leikmanna sem voru með í síðasta leik. Christian Greko Jakobsen verður í leikbanni, Atli Sigurjónsson tognaði gegn Stjörnunni og Sebastian Haugland er farinn heim til Noregs. Þórsarar verða því með fleiri yngri menn á bekknum í leiknum gegn ÍBV á sunnudag. Sá leikur hefst klukkan 17:00 og fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.
10. umferðin í Bestu
sunnudagur 14. júní
17:00 Keflavík-FH (HS Orku völlurinn)
17:00 Þór-ÍBV (VÍS völlurinn)
mánudagur 15. júní
18:00 KA-Fram (Greifavöllurinn)
þriðjudagur 16. júní
19:15 ÍA-Valur (ELKEM völlurinn)
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Samsungvöllurinn)
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |


