Það voru þrjú rauð spjöld sem fóru á loft þegar Mexíkó vann 2-0 sigur gegn Suður-Afríku í opnunarleik HM í gær. Alls voru fjögur rauð spjöld voru gefin á HM í Katar svo þetta mót er nálægt því að jafna þann fjölda nú þegar.
Dale Johnson sérfræðingur BBC hefur skoðað rauðu spjöldin sem brasilíski dómarinn Wilton Sampaio gaf í gær:
Dale Johnson sérfræðingur BBC hefur skoðað rauðu spjöldin sem brasilíski dómarinn Wilton Sampaio gaf í gær:
Fyrsta rauða fékk Yaya Sithole í Suður-Afríku réttilega fyrir að ræna upplögðu marktækifæri þegar hann braut á Brian Gutierrez.
Annað rauða fékk Themba Zwane í Suður-Afríku fyrir að slá frá sér í baráttunni. Dómarinn var sendur í VAR skjáinn en Johnson segir erfitt að sjá atvikið nákvæmlega hvað gekk á í þeim myndskeiðum. Þetta hafi ekki verið augljós mistök dómara og því vafamál hvort VAR hefði átt að bregðast við.
Þriðja rauða fékk svo Cesar Montes hjá Mexíkó sem var talinn hafa rænt upplögðu marktækifæri af Khuliso Mudau. Hinsvegar var Mudau ekki á leið í átt að markinu með boltann og því mjög strangur dómur að reka Montes af velli. Mudau hefði hinsvegar líklega leikið boltanum innar með næstu snertingu og svo tekið skotið. Þar sem dómarinn tók ákvörðun um rautt úti á vellinum taldi VAR ekki um augljós mistök að ræða og brást ekki við.
Allir leikmennirnir þrír sem fengu rautt munu vera í banni í annarri umferð riðlakeppninnar.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



