Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 10:00
Kári Snorrason
FIFA skipar Haítí að breyta um keppnisbúninga
Treyjan sem um ræðir.
Treyjan sem um ræðir.
Mynd: EPA
FIFA hefur gefið Haítí fyrirmæli um að breyta hönnun keppnisbúninga sinna nokkrum dögum fyrir fyrsta leik þeirra á heimsmeistaramótinu.

Á öllum þremur búningum þeirra var mynd sem sýndi orrustuna við Vertiéres, átök sem áttu þátt í að tryggja sjálfstæði Haítí.

Reglur FIFA kveða á um að það sé bannað að hafa pólitísk, trúarleg eða skilaboð og slagorð á treyjum.

Saeta, framleiðandi búningana, heldur því fram að hönnunin hafi ekki verið hugsuð sem pólitísk yfirlýsing, heldur átti treyjan að fagna stolti Haítí.

Þá segir framleiðandinn hafa gert þær breytingar sem FIFA fór fram á og mun Haítí spila í treyjum án myndarinnar aðfaranótt sunnudags þegar liðið mætir Skotlandi.




Slapp
banner
banner