fös 12. júlí 2019 22:00
Oddur Stefánsson
Heimild: Sky Sports 
Fabian Delph í Everton
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Everton er nálægt því að ganga frá kaupunum á Fabian Delph frá Manchester City.

Sky greinir einnig frá því að félagið mun greiða um níu milljónir punda fyrir Englendinginn.

Fabian Delph gekk til liðs við Manchester City sumarið 2015 og hefur leikið 57 leiki fyrir meistarana.

Delph sem lék sem miðjumaður hjá Aston Villa gæti verið hugsaður sem viðbót á mijuna þar sem PSG eru ólmir að fá Idrissa Gana Gueye frá Everton.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner