Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. júlí 2019 16:57
Arnar Helgi Magnússon
Tokic gerir nýjan tveggja ára samning við Selfoss
Mynd: Arnar Helgi Magnússon
Hrvoje Tokic skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við Selfoss.

Tokic hefur spilað vel í 2. deild í sumar og er markahæstur þar með tíu mörk, ásamt liðsfélaga sínum, Kenan Turudija.

„Þetta var mjög auðveld ákvörðun fyrir mig. Ég er mjög ánægður hérna á Selfossi. Þetta hefur verið gott samstarf hingað til og ég er sannfærður um að það verði það áfram," sagði Tokic eftir undirskriftina.

Þrátt fyrir að vera kominn með átta mörk telur Tokic sig geta gert enn betur.

„Ég er nokkuð ánægður með mína frammistöðu í sumar þó svo að ég telji að ég geti gert enn betur. Ég og liðið erum að bæta okkur, ég á eftir að skora miklu fleiri mörk í sumar og við ætlum klárlega upp," sagði framherjinn að lokum.

Jón Steindór Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, fagnar undirskriftinni.

„Við erum gífurlega ánægðir með þetta. Tokic hefur verið frábær fyrir okkur síðan að hann kom. Hann er ekki bara að gera hlutina vel innan vallar heldur einnig utan hans. Hann er frábær fyrirmynd fyrir okkar ungu leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokksbolta," segir Jón.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner