Fotbolti.net
12.07.22 - 13:12
Hulda Mýrdal

Heimavöllurinn: Klúður gegn Belgíu, næst eru rassskelltir Ítalar og 100 leikja Fanndís Friðriksdóttir

Auglýsing
Bára Kristbjörg og Fanndís Friðriksdóttir eru gestir Heimavallarins

Bára Kristbjörg og Fanndís Friðriksdóttir eru gestir Heimavallarins

Canon

Mynd: Heimavöllurinn

Í boði Landsbankans, Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu er fyrsti leikur Íslands á EM gerður upp með Báru Kristbjörgu knattspyrnusérfræðing ásamt því að fara yfir einstaklingsframmistöður og möguleika Íslands í riðlinum. Við heyrðum einnig í Fanndísi Friðriksdóttir sem hefur farið á öll stórmót Íslands hingað til og er einn af þeim Íslendingum sem hefur tekist að skora mark á stórmóti í knattspyrnu

Á meðal efnis:

- Byrjunarlið Íslands á móti Belgíu- hvaða eiginleikar eru mikilvægir í fyrsta leik?

- Spennustigið í upphafi leiks

- Frábær varnarleikur og fjölmörg færi

- Hver er vítaskytta Íslands? 

- Of áhættusamt að setja tvítugan leikmann á punktinn eða hvað?

- Eftirá skýringar eru auðveldar

- Berglind er töffari

- “Þetta er bara víti, því miður”

- Skiptingarnar þrjár 

- Miðjumennirnir þrír - hver með sinn einstaka eiginleika en KLV meira skapandi.

- Hvernig eiga leikmenn að vera komnir inn í teig þegar leikmaður hleypur á 32 km hraða?

- Fanndís Friðriksdóttir hefur farið á 3. stórmót og kann þetta allt.

- Skrítið að horfa á leikina heima og andlega erfið endurhæfing

- Þurfum sigur á móti Ítalíu

- Möguleikar Íslands eftir stórsigur Frakklands á Ítalíu

- Ekki gott fyrir okkur að Ítalía hafi fengið rassskellingu - hvernig fótbolta munu þær spila?

- Allt getur gerst í riðlinum

- Vill sjá Áslaugu Mundu byrja leikinn út á kanti

-Heklan hefur sýnt heiminum að allir draumar geta ræst. Nú sýnir hún heiminum og næstu kynslóðum að það er bókstaflega allt hægt. 

Hlustaðu hér að ofan, í gegnum hlaðvarpsveituna þína eða á Heimavöllurinn.is

Þátturinn er í boði Dominos, Heklu, Landsbankans og Orku náttúrunnar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir að styðja við umfjöllun Heimavallarins um knattspyrnu kvenna.

Heimavöllurinn er einnig á Instagram en þar eru knattspyrnu kvenna gerð skil á lifandi hátt alla daga vikunnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.