Fotbolti.net
18.06.26 - 20:01
Brynjar Ingi Erluson

Fram og Þróttur spila heima í undanúrslitunum

Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, dró ásamt Herði Magnússyni og Margréti Láru Viðarsdóttur

Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, dró ásamt Herði Magnússyni og Margréti Láru Viðarsdóttur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Dregið var í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna í beinni útsendingu á RÚV í kvöld.
Drátturinn fór fram rétt eftir að flautað var til leiksloka í 1-0 sigri Þróttar á Víkingi í 8-liða úrslitunum.

Þróttur spilar aftur heima en liðið fær ÍBV í heimsókn á meðan Fram mun mæta Grindavík/Njarðvík eða Stjörnunni, en sá leikur hefst klukkan 20:15.

Undanúrslitin fara fram laugardaginn 25. júlí og eru leikirnir spilaðir klukkan 13 og 16.

Undanúrslitin:
Fram - Grindavík/Njarðvík eða Stjarnan
Þróttur R. - ÍBV
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.