Mjólkurbikar kvenna: María skaut Þrótti í undanúrslit

María kom Þrótturum áfram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

María kom Þrótturum áfram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur bókaði sæti sitt í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna með 1-0 sigri á Víkingi á AVIS-vellinum í Laugardal í kvöld.
Dagný Rún Pétursdóttir fékk fyrsta dauðafæri leiksins á 12. mínútu þegar hún fékk skemmtilega sendingu inn fyrir frá Jasmín Erlu Ingadóttur. Dagný komst framhjá Mollee Swift í markinu en setti boltann í hliðarnetið.
Undir lok fyrri hálfleiks voru Víkingar aftur nálægt því að komast yfir eftir darraðardans í teig Þróttara eftir hornspyrnu. Það endaði með því að Þróttarar björguðu á línu.
Hálftíma fyrir leikslok björguðu Þróttarar aftur á línu eftir skot Þórdísar Hrannar Sigfúsdóttur.
Þegar aðeins fimm mínútur voru eftir fengu Þróttarar hornspyrnu. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir, markvörður Víkinga, var í miklu basli með spyrnuna og náði ekki að koma boltanum frá. Boltinn barst til Maríu Evu Eyjólfsdóttur sem skaut Þrótti í undanúrslit.
Þróttur er þriðja liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum, á eftir Fram og ÍBV. Síðasti leikurinn í 8-liða úrslitum fer fram klukkan 20:15 í kvöld þegar Grindavík/Njarðvík fær Stjörnuna í heimsókn.