Fotbolti.net
18.06.26 - 20:31
Brynjar Ingi Erluson

Fanney hélt hreinu þriðja leikinn í röð - Alexandra lagði upp

Fanney Inga hélt enn og aftur hreinu

Fanney Inga hélt enn og aftur hreinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Fanney Inga Birkisdóttir hélt hreinu er Svíþjóðarmeistarar Häcken unnu 2-0 sigur á Rosengård í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Landsliðskonan er að gera góða hluti með Häcken sem ætlar sér að verja deildarmeistaratitilinn.

Hún var að halda hreinu í þriðja sinn í síðustu þremur leikjum, sem hafa allir unnist.

Thelma Karen Pálmadóttir var einnig í byrjunarliði Häcken sem er í öðru sæti með 27 stig eftir tíu leiki, jafnmörg og Hammarby sem er með betri markatölu á toppnum.

Alexandra Jóhannsdóttir lagði upp annað mark Kristianstad í dramatískum 3-2 sigri á Uppsala. Alexandra og Linda Líf Boama voru í byrjunarliði Kristianstad, en Elísa Lana Sigurjónsdóttir á bekknum.

Þetta var fyrsta stoðsending Alexöndru í deildinni á þessari leiktíð.

Kristianstad er í 6. sæti með 15 stig.

Sigdís Eva Bárðardóttir var þá í byrjunarliði Norrköping sem gerði markalaust jafntefli við Växjö DFF. Norrköping er í 11. sæti með 8 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.