12.08.12 - 11:11
Hafliði Breiðfjörð
Everton samþykkir tilboð Man City í Rodwell (Staðfest)

Jack Rodwell er að fara til Manchester City.

Mynd: Getty Images

Everton staðfesti á vef sínum rétt í þessu að félagið hafi samþykkt tilboð Manchester City í miðjumanninn Jack Rodwell.
Þar kemur fram að leikmaðurinn muni gangast undir læknisskoðun hjá Manchester City í dag og í kjölfarið má búast við að gengið verði frá félagaskiptum.

Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City hefur lengi haft áhuga á Rodwell og ekki minnkaði hann þegar leikmaðurinn fór illa með Man City í mikilvægum leik í ensku deildinni árið 2010.
Hann heillaðist líka að Rodwell þegar hann tók David Silva út úr leik liðanna á Etihad leikvangi City á síðustu leiktíð.
Talið er að kaupverðið geti verið í kringum 15-20 milljónir punda en ekkeft hefur komið fram staðfest um það.
Manchester United og Chelsea eru einnig talin hafa haft áhuga á að ná í þennan 21 árs gamla leikmann en City hafði betur í baráttunni.

Heimild: Vefur Everton