12.08.12 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Gabriel Heinze til Newell\'s Old Boys (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newell\'s Old Boys í Argentínu hefur fengið heimamanninn Gabriel Ivan Heinze til félagsins frá AS Roma á Ítalíu.
Heinze, sem er 34 ára gamall, samdi við Newell\'s Old Boys til ársins 2013, með möguleika á að framlengja um annað ár.
Hann er því kominn heim til sín eftir frábæran feril í Evrópu, en hann lék með Paris Saint-Germain, Manchester United, Real Madrid, Marseille og síðast AS Roma.
Hann er annar heimamaðurinn sem argentíska félagið fær til sín sem kemur frá Evrópu, en Maxi Rodriguez kom á dögunum frá Liverpool á Englandi.

Heimild: Sky