Fotbolti.net
12.08.18 - 18:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Derby Carrillo farinn frá ÍBV (Staðfest)

Derby kom til ÍBV 2016.

Derby kom til ÍBV 2016.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Derby Carrillo hefur yfirgefið herbúðir ÍBV. Þetta staðfesti Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir <a href=\"https://www.fotbolti.net/news/12-08-2018/pepsi-deildin-ibv-likar-vid-ad-spila-vid-fh-a-thessum-degi\" target=\"_blank\">sigur gegn FH</a> í Pepsi-deildinni í dag.
Derby ætlar að reyna að koma sér að hjá liði í Bandaríkjunum en félagaskiptaglugginn þar í landi er enn opinn.

Derby kom fyrst til ÍBV árið 2016 en hann er frá El Salvador.

Hann spilaði með ÍBV 2016, 2017 og í sumar, en hann hefur aðeins komið við sögu í sex leikjum í sumar og ekki þótt sannfærandi í sínum aðgerðum.

Halldór Páll Geirsson mun sjá um að verja mark ÍBV það sem eftir er af sumrinu.

Viðtalið við Kristján Guðmundsson kemur inn á síðuna von bráðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.