Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. ágúst 2018 12:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er þitt lið klárt? - Harðfiskur í verðlaun í Draumaliðsdeildinni
Það er harðfiskur í verðlaun.
Það er harðfiskur í verðlaun.
Mynd: Eyjabiti
ÍBV heimsækir FH í fyrsta leik umferðarinnar.
ÍBV heimsækir FH í fyrsta leik umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sextánda umferðin í Pepsi-deild karla hefst í dag, sunnudag og lýkur henni á morgun.

Markaðurinn í Draumaliðsdeild Eyjabita lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar eða klukkan 15:00 í dag.

Búið er að yfirfara og leiðrétta stig úr umferðum 13 og 14 í Draumaliðsdeildinni og ættu öll stig að vera rétt núna.

Það er um að gera að breyta liði þínu ef þú ert ekki nægilega sáttur með gengið hingað til, því stigahæsta liðið í 16. umferðinni fær fullt af harðfisk í verðlaun frá Eyjabita!

Stórglæsileg verðlaun
Sjöunda árið í röð stendur Fótbolti.net fyrir Draumaliðsleik í Pepsi-deild karla. Þriðja árið í röð er harðfiskvinnslan Eyjabiti aðalstyrktaraðili deildarinnar sem rekin er af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár.

Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum sem og harðfisk frá Eyjabita.

Eyjabiti gefur reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar og það á við í þessari umferð.

Er liðið þitt klárt?

Í dag:
16:00 FH-ÍBV (Kaplakrikavöllur)
18:00 KR-Fjölnir (Alvogenvöllurinn)
18:00 Keflavík-KA (Nettóvöllurinn)
18:00 Fylkir-Stjarnan (Floridana völlurinn)

Á morgun:
18:00 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
19:15 Valur-Grindavík (Origo völlurinn)

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner