Um helgina birtust myndir á samfélagsmiðlum af hinum ellefu ára gamla Louis Fowler og Mohamed Salah leikmanni Liverpool.
Fowler var með blóðnasir á myndinni en hann hafði slasað sig þegar hann hljóp á ljósastaur við það að reyna að elta bíl Salah.
Salah kom síðar og athugaði hvort Fowler væri heill heilsu. Fowler og vinir hans fengu síðan myndir af sér með Salah.
Fowler fór í viðtal hjá BBC þar sem hann ræddi um hinn vingjarnlega Salah.
„Hann athugaði hvort það væri í lagi með mig og hann hafði miklar áhyggjur af mér. Síðan fengum við myndir með honum. Það var frábært þó að myndin hafi ekki verið sú besta út af nefinu á mér," sagði Fowler.
Hér að neðan má sjá viðtalið við Fowler.

“Mo Salah just came driving to our close. We walked out of our garden and he checked if I was OK, he was really worried about me”
— Victoria Derbyshire (@VictoriaLIVE) August 12, 2019
Louis Fowler ran into a lamppost chasing Mo Salah’s car – only for the footballer to stop and have a photo with himhttps://t.co/DdPg8eiBWK pic.twitter.com/hTG6yXDgsc
Athugasemdir