mið 12. ágúst 2020 22:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin úr mjög dramatískum sigri PSG gegn Atalanta
Mynd: Getty Images
PSG er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í 25 ár eftir dramatískan sigur á ítalska félaginu Atalanta í Portúgal í kvöld.

Atalanta leiddi 1-0 stærstan hluta leiksins en í uppbótartímanum skoraði PSG tvisvar og bar Parísarliðið því sigur úr býtum.

Atalanta pressaði mikið allan leikinn og tankurinn var tómur undir lokin. Það var ekkert eftir og það nýtti PSG sér með stórstjörnur sínar, Neymar og Mbappe, í fararbroddi.

Vísir.is hefur birt myndbönd af mörkunum úr leiknum og má sjá þau hér að neðan.

Atalanta 1 - 2 Paris Saint Germain
1-0 Mario Pasalic ('27 )
1-1 Eric Choupo-Moting ('90 )
1-2 Marquinhos ('90 )


Athugasemdir
banner
banner
banner