12.08.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Enrique vildi ekki tjá sig um framtíð Barcola - „Það er hættulegt“

Bradley Barcola

Mynd: EPA

Bradley Barcola

Mynd: EPA
Luis Enrique, þjálfari Evrópumeistara Paris Saint-Germain, var spurður út í framtíð Bradley Barcola á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Aston Villa í Ofurbikar Evrópu. Spánverjinn hafði þó lítinn áhuga á að ræða málið.
Barcola vill yfirgefa PSG til að fá stærra hlutverk hjá öðru félagi og er sagður hafa náð munnlegu samkomulagi við Liverpool um kaup og kjör.
Liverpool á í viðræðum við PSG en enn er mikið bil á milli félaganna í verðmati á leikmanninum.
Frakkinn ferðaðist með PSG til Salzburg fyrir leikinn gegn Aston Villa. Ibrahim Mbaye, sem hefur einnig verið orðaður við Liverpool, var sömuleiðis með í för.
Enrique vildi þó lítið ræða framtíð Barcola.
„Ég veit það ekki og vil ekki ræða hvern einasta leikmann fyrir sig. Það getur alltaf verið hættulegt að svara spurningum um framtíð leikmanna, hvort sem svarið er jákvætt eða neikvætt. Ég einbeiti mér að liðinu mínu,“ sagði Enrique.