Fotbolti.net
12.08.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keflavík reynir að fá Elvis

Keflavík reynir að fá Elvis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að reyna fá Elvis Bwomono í sínar raðir en til þess að það gangi þarf hann að fá atvinnuleyfi í tæka tíð.

Elvis þekkir vel til á Íslandi því hann spilaði með ÍBV tímabilin 2022, 2023 og svo seinni hlutann á síðasta tímabili. Hann hefur lengst af á ferlinum spilað með Southend.
Keflavík fær leikmann frá Standard Liege (Staðfest)
TENGT EFNI

Keflavík fær leikmann frá Standard Liege (Staðfest)

Hann er fjölhæfur leikmaður, fæddur 1998 og er frá Úganda en er einnig með enskan ríkisborgararétt. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður.

Hann var síðast á mála hjá Aberdeen í Skotlandi en samningur hans þar rann út í sumar. Hann kom við sögu í þremur leikjum í skosku úrvalsdeildinni í vor.

Keflavík fékk fyrr í dag félagaskipti fyrir Mate Simicic en hann kemur frá Standard Liege í Belgíu. Félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti í kvöld.
Keflavík reynir að fá Elvis
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.