Fotbolti.net
12.09.12 - 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer

Andre Bikey til Middlesbrough (Staðfest)

Andre Bikey til Middlesbrough (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur nælt sér í varnarmanninn Andre Bikey á frjálsri sölu og skrifaði hann undir eins árs samning.

Þessi 27 ára Kamerúni var án félags eftir að samningur hans við Burnley rann út í lok síðustu leiktíðar.
Bikey kom í enska boltann árið 2006 þegar hann var lánaður til Reading frá rússneska félaginu Lokomotiv Moskva og gekk síðan endanlega til liðs við Reading ári síðar.

Hann fór síðan til Burnley árið 2009 þegar félagið lék í fyrsta sinn í sögunni í ensku úrvalsdeildinni. Hann var lánaður til Bristol City á síðustu leiktíð en fékk síðan ekki nýjan samning hjá Burnley.

,,Ég er spenntur að fá tækifæri til að hjálpa Middlesbrough að komast aftur í ensku úrvalsdeildina,\" sagði Bikey eftir undirskriftina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.