Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 12. september 2021 22:27
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið hjá Sveindísi: Stórglæsileg afgreiðsla
Sveindís Jane Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu
Sveindís Jane Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir gerði sigurmark Kristianstad í 1-0 sigrinum á Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag en það var af dýrustu gerð.

Sveindís var dansandi með boltann í teignum áður en hún þrumaði honum í þaknetið hægra megin.

Þetta var fimmta mark hennar á tímabilinu en þar að auki er hún með fjórar stoðsendingar í þrettán leikjum.

Hún mætir því í góðu formi fyrir landsleikinn gegn Hollandi sem fer fram 21. september næstkomandi en markið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner