Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 12. október 2018 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd undirbýr ofurtilboð í Lucas Hernandez
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Slúðurpakki dagsins er á sínum stað og fylgir okkur inn í þessa áhugaverðu landsleikjahelgi.



Everton er að íhuga að bjóða Samir Nasri, 31, samning þegar hann kemur úr leikbanni í nóvember. (Daily Mail)

Manchester United ætlar að bjóða Juan Mata nýjan samning síðar í október. Mata er 30 ára og rennur samningur hans út næsta sumar. (The Sun)

Tottenham hefur áhuga á að fá Eric Bailly, 24, frá Man Utd í janúar. (Express)

Tottenham hefur einnig áhuga á Cedric Bakambu, 27 ára sóknarmanni Beijing Guoan í kínverska boltanum. Guoan borgaði rúmlega 35 milljónir punda fyrir Bakambu í febrúar og hefur sóknarmaðurinn gert 16 mörk í 15 deildarleikjum. (L'Est Republican)

Paris Saint-Germain vill ráða Arsene Wenger sem yfirmann knattspyrnumála. (RMC)

Man Utd undirbýr ofurtilboð í Lucas Hernandez, 22 ára vinstri bakvörð Atletico Madrid. Lucas er með söluákvæði sem hljóðar upp á 70 milljónir punda. (Marca)

Napoli kom í veg fyrir félagaskipti Elseid Hysaj, 24, til Chelsea í sumar. Hægri bakvörðurinn vildi ganga til liðs við Maurizio Sarri en félagið leyfði það ekki. (Radio Kiss Kiss)

Liverpool og Juventus fylgjast með samningsmálum Piotr Zielinski, 24, hjá Napoli. Leikmaðurinn er ósáttur með söluákvæðið í samningi sínum. (Calciomercato)

Barcelona er við það að kaupa Matthijs de Ligt, 19 ára varnarmann Ajax. (Mundo Deportivo)

Paco Alcacer mun vera áfram hjá Borussia Dortmund eftir að hafa samþykkt drög að samningstilboði frá félaginu. Paco, 25 ára sóknarmaður, er á láni frá Barcelona og er falur fyrir 23 milljónir evra. (Bild)

Tottenham hefur áhuga á Nikola Milenkovic, 20 ára varnarmanni Fiorentina. (Mirror)

Njósnarar á vegum Newcastle fylgdust með Mady Camara, 21 árs miðjumanni Olympiakos, um helgina. (Sport in a Storm)

Arsenal og Man City munu ekki fá Cengiz Ünder, 21, að sinni. Búist er við að Tyrkinn ungi skrifi undir nýjan samning við Roma. (Calciomercato)

Steve Sidwell, 35, hefur opnað sína eigin barnafatabúð. (The Sun)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner