12.11.26 - 22:18
Brynjar Ingi Erluson
Carrick sár yfir því hvernig staðið var að brottrekstrinum

Michael Carrick

Mynd: EPA

Omar Berrade og Jason Wilcox vildu ekki reka Carrick í gegnum símann

Mynd: EPA

Gary Neville segir hegðun Man Utd í garð Carrick vera viðbjóðslega

Mynd: EPA

Michael Carrick

Mynd: EPA
Michael Carrick, fyrrum stjóri Manchester United, er sagður sár yfir því hvernig félagið stóð að brottrekstri hans. Telegraph greinir frá.

TENGT EFNI
Carrick rekinn frá United (Staðfest)
Carrick var rekinn í dag eftir fund með Omar Berrada, framkvæmdastjóra félagsins, og Jason Wilcox, yfirmanni fótboltamála, á Carrington-æfingasvæðinu.
Brottreksturinn kom þremur dögum eftir að fjölmiðlar greindu fyrst frá því að Carrick yrði látinn taka pokann sinn.
Gary Neville, fyrrum leikmaður United og samherji Carrick, sagði meðferðina á honum viðbjóðslega og gagnrýndi að hann hefði verið skilinn eftir á hakanum á meðan félagið undirbjó komu Mauricio Pochettino í hans stað.
Samkvæmt Telegraph var Carrick afar sár yfir því hvernig staðið var að málunum. Stjórnarmenn United eru sagðir skilja viðbrögð hans vel og sjá eftir því hvernig fréttirnar láku út.
Berrada hafði samband við umboðsmann Carrick á mánudag og Wilcox ræddi síðan við Carrick daginn eftir til að upplýsa hann um stöðuna og hugmyndir félagsins. Berrada og Wilcox flugu svo til Mónakó á þriðjudag til að funda með Sir Jim Ratcliffe, hluteiganda félagsins, og ganga frá ákvörðuninni um brottreksturinn.
Heimildarmenn innan United segja að félagið hafi viljað standa rétt að málunum og fylgja viðeigandi ferli áður en Carrick yrði tilkynnt um ákvörðunina. Stjórnarmenn töldu sig hafa sýnt eins mikið gagnsæi og aðstæður leyfðu.
Berrada og Wilcox vildu ekki tilkynna Carrick um brottreksturinn í gegnum síma í gærkvöldi og ákváðu þess í stað að hitta hann í eigin persónu á æfingasvæðinu í dag.
Á meðan þurfti Carrick að stýra æfingum liðsins á þriðjudag og miðvikudagsmorgun, þrátt fyrir að fréttir af yfirvofandi brottrekstri hans væru komnar í fjölmiðla og United væri þegar í viðræðum við Pochettino. Stærstur hluti leikmannahópsins var á þessum tíma farinn í landsleikjaverkefni.
Steve Holland, Jonathan Woodgate, Jonny Evans og Travis Binnion, aðstoðarmenn Carrick, hafa einnig yfirgefið félagið. Talið er að það muni kosta United um fimm milljónir punda að rifta samningum þeirra.