12.11.26 - 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild kvenna: Markvörðurinn sá rautt í Portúgal

Benfica fagnar fyrsta marki kvöldsins

Mynd: EPA

Benfica fagnar fyrsta marki kvöldsins

Mynd: EPA

SL Benfica 3 - 1 Austria Wien
1-0 Andreia Norton ('5 )
1-1 Carina Wenninger ('53 )
2-1 Caroline-Sophie Moller ('76 )
3-1 Nycole Raysla ('90 )
Rautt spjald: Jasmin Pal ('73, Austria Wien )

Portúgalska stórliðið Benfica vann sinn annan leik í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna í kvöld þegar liðið lagði Austria Vín að velli, 3-1.
Andreia Norton kom Benfica yfir eftir aðeins fimm mínútna leik. Nycole Raysla fékk þá boltann inn fyrir vörnina og kom honum á Norton inni í vítateignum sem skoraði af öryggi.
Í síðari hálfleik fengu gestirnir vítaspyrnu sem Carina Wenninger skoraði úr og jafnaði þar með metin.
Þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka hljóp Jasmin Pal, markvörður Austria, út fyrir vítateiginn og felldi framherja Benfica. Hún fékk að líta rauða spjaldið fyrir brotið og gestirnir því orðnir manni færri.
Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Caroline-Sophie Moller sigurmark Benfica með skalla eftir hornspyrnu.
Brasilíska Raysla skoraði þriðja markið í uppbótartíma. Hún, Moller og Norton voru því allar með mark og stoðsendingu í leiknum.
Benfica er þar með komið með sex stig eftir fjóra leiki, á meðan Austria situr á botninum með aðeins eitt stig.