Fotbolti.net
12.11.26 - 19:54
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeild kvenna: Meistarar síðustu tveggja ára gerðu jafntefli á Camp Nou

Graham Hansen bjargaði stigi fyrir Börsunga

Graham Hansen bjargaði stigi fyrir Börsunga

Canon

Mynd: EPA

MeistaradeildKvennaboltinn
Barcelona 1 - 1 Arsenal
0-1 Frida Leonhardsen-Maanum ('22 )
1-1 Caroline Graham Hansen ('59 )
Evrópu- og Spánarmeistarar Barcelona gerðu 1-1 jafntefli við Arsenal, Evrópumeistara frá árinu 2025, í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna á Camp Nou í kvöld.

Börsungar hafa verið í frábærum gír á tímabilinu, rétt eins og nánast undanfarin sjö ár.

Arsenal tókst hins vegar hið ótrúlega að vinna Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðasta ári og enska liðið komst yfir á 22. mínútu með marki norsku landsliðskonunnar Fridu Leonhardsen-Maanum.

Fyrirgjöf kom inn frá vinstri og Cata Coll varði fyrstu tilraun Arsenal, en boltinn hrökk út til Fridu sem lét ekki segja sér það tvisvar og renndi boltanum í netið.

Caroline Graham Hansen jafnaði metin fyrir Börsunga á 59. mínútu eftir sendingu frá Esmee Brugts og var afgreiðslan lagleg.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og lauk leiknum með 1-1 jafntefli.

Barcelona situr í öðru sæti með tíu stig eftir fjóra leiki, en Arsenal er í fjórða sæti með átta stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.