12.11.26 - 21:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá BenidormLíklegt byrjunarlið Íslands í Búlgaríu

Mikael Egill Ellertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orri Steinn og Andri Lucas hafa verið funheitir.

Mynd: KSÍ

Mikael Egill Ellertsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Á morgun föstudag, klukkan 19:45 að íslenskum tíma, hefst leikur Búlgaríu og Íslands í Þjóðadeildinni. Leikurinn fer fram í Plovdiv, á Hristo Botev leikvanginum.
Fyrri leikur Íslands og Búlgaríu endaði með 3-0 sigri Íslands á Laugardalsvelli.

TENGT EFNI
Aldrei fleiri mætt með skotskóna í landsliðsverkefni?
Fótbolti.net rýnir í mögulegt byrjunarlið fyrir leikinn og frá síðasta leik, gegn Eistlandi, yrðu tvær breytingar á liðinu ef spá rætist.
Kristall Máni Ingason kæmi á kantinn fyrir Mikael Neville Anderson og Mikael Egill Ellertsson, sem tók út leikbann gegn Eistum, kæmi inn í varnarlínuna fyrir Hörð Björgvin Magnússon.
Það er spurning með aðra miðvarðarstöðuna, hvort það verði Stefán Teitur Þórðarson eða Hörður Björgvin sem mun spila með Daníel Leó í hjarta varnarinnar. Daníel kemur til móts við hópinn á morgun. Við spáum því að það verði Stefán Teitur sem fái kallið í byrjunarliðið.
Mikael Egill verður í annarri bakvarðarstöðunni og við spáum því að Guðlaugur Victor Pálsson verði í hinni, en Logi Tómasson gerir tilkall.
Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson eru fastamenn í liðinu og við spáum því að Gylfi Þór Sigurðsson verði miðsvæðis og Hákon því á öðrum hvorum kantinum í frjálsara hlutverki.
Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson verða saman frammi nema eitthvað mjög óvænt gerist. Brynjólfur Andersen Willumsson er að gera allt rétt með Groningen í Hollandi en hefur ekki náð að stimpla sig inn í landsliðið.
Við spáum því að á hinum kantinum verði Kristall Máni sem hefur verið funheitur með Brann. Jón Dagur Þorsteinsson gerir einnig sterkt tilkall í þá stöðu og Mikael Egill gæti einnig færst framar á völlinn.

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mynd: KSÍ