12.11.26 - 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Spænski konungsbikarinn: La Liga-liðin þurftu að hafa fyrir hlutunum

Rodrigo Riquelme skoraði tvennu

Mynd: EPA

Rodrigo Riquelme skoraði tvennu

Mynd: EPA
Real Betis og Levante, sem leika bæði í La Liga á Spáni, þurftu heldur betur að hafa fyrir því að tryggja sér sæti í annarri umferð spænska konungsbikarsins í kvöld.
Real Betis vann 3-2 baráttusigur á Navalcarnero, sem leikur í C-deildinni á Spáni.
Rodrigo Riquelme skoraði tvö mörk fyrir Betis, þar á meðal sigurmarkið í framlengingu. Isco brenndi síðan af vítaspyrnu í síðari hálfleik framlengingarinnar og þá fékk framherjinn Aitor Ruibal sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Betis tókst þó að halda út og tryggja sér sæti í næstu umferð, rétt eins og Levante sem marði 2-1 endurkomusigur á Tarancon úr D-deildinni.
Tarancon komst yfir á 53. mínútu, en Petar Ratkov jafnaði metin þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Það stefndi allt í vítaspyrnukeppni þegar Dela steig á punktinn í blálok framlengingarinnar og skoraði sigurmark Levante.
Navalcarnero 2 - 3 Betis
0-1 Rodrigo Riquelme ('5 )
1-1 Alvaro Leis ('49 )
2-1 Kensly Vazquez ('79 )
2-2 Rodrigo Marina ('90 )
2-3 Rodrigo Riquelme ('96 )
Rautt spjald:Aitor Ruibal , Betis ('118)
Tarancon 1 - 2 Levante
1-0 Sergio Nieto ('53 )
1-1 Petar Ratkov ('80 )
1-2 Dela ('120 )