Fotbolti.net
12.12.19 - 08:50
Elvar Geir Magnússon

Stuðningsmenn Lilleström trylltust - Leikmenn fengu lögreglufylgd

Stuðningsmenn Lilleström trylltust - Leikmenn fengu lögreglufylgd
Canon

Mynd: Skjáskot

Jóhannes Harðarson og lærisveinar í Start komust upp í norsku úrvalsdeildina á dramatískan hátt. Aron Sigurðarson leikur með Start.

Gleðin var þó ekki mikil hjá Arnóri Smárasyni og félögum í Lilleström sem komust í 4-0 í leiknum en fengu á sig þrjú mörk. 4-3 urðu lokatölur og Start komst upp á fleiri útivallarmörkum eftir 2-1 sigur í fyrri leiknum.
Stuðningsmönnum Lilleström var ekki skemmt og einhverjir þeirra misstu stjórn á skapi sínu þegar dómarinn flautaði af.

Þeir voru með ógnandi hegðun og starfsmenn Lilleström sögðu leikmönnum að drífa sig inn í klefa.

Lögreglan var kölluð til og veittu leikmönnum fylgd eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan, sem Íslendingavaktin birti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.