Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. desember 2021 20:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kjarnafæðimótið: Þór/KA og KF byrjuðu á sigri
Agnes Birta Stefánsdóttir skoraði fyrir Þór/KA
Agnes Birta Stefánsdóttir skoraði fyrir Þór/KA
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tveir leikir fóru fram í Kjarnafæði mótinu í dag.

KJarnafæðimótið er æfingamót sem lið af Norðurlandi taka þátt í. Annar leikurinn í A-deild riðli tvö fór fram í dag þar sem KF og Dalvík/Reynir áttust við.

Bæði lið tefldu fram ungum og efnilegum leikmönnum að mestu leyti. Svo fór að KF vann með tveimur mörkum gegn engu en Marinó Snær Birgisson skoraði bæði mörkin.

Kvennadeildin hófst í dag en Þór/KA lagði Fjarðabyggð/Hött/Leikni 4-2.

Staðan var 2-1 í hálfleik. Una Móeiður Hlynsdóttir kom Þór/KA yfir og Ísfold Marý Sigtryggsdóttir tvöfaldaði forystuna. Freyja Karín Þorvarðardóttir minnkaði muninn fyrir F/H/L.

Agnes Birta Stefánsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir skoruðu fyrir Þór/KA í seinni hálfleik en Freyja Karín skoraði aftur fyrir F/H/L.

KF 2-0 Dalvík/Reynir
Mörk KF: Marinó Snær Birgisson x2

Þór/KA 4-2 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Mörk Þór/KA: Una Móeiður Hlynsdóttir, Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir.
Mörk F/H/L: Freyja Karín Þorvarðardóttir x2
Athugasemdir
banner