Evrópudeildin: Höjlund kom Man Utd til bjargar


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Rasmus Höjlund kom Manchester United til bjargar þegar liðið heimsótti Viktoria Plzen í Evrópudeildinni í kvöld.
Það var markalaust í hálfleik en Andre Onana lenti í vandræðum snemma í síðari hálfleik þegar sendingin hans endaði hjá mótherja og Matej Vydra batt endahnútinn á sóknina.
Rasmus Höjlund hefur verið að gera góða hluti undir stjórn Ruben Amorim en hann byrjaði á bekknum í kvöld. Hann kom inn á snemma í seinni hálfleik og lét til sín taka.
Hann jafnaði metin eftir klukkutíma leik og svo á lokamínútunum skoraði hann eftir að Bruno Fernandes var fljótur að hugsa og kom boltanum inn á teiginn eftir aukaspyrnu. Man Utd er í einu af átta efstu sætunum sem stendur en sjötta umferðin klárast síðar í kvöld.
Roma vann annan leik sinn í keppninni þegar liðið lagði portúgalska liðið Braga af velli.
Ludogorets 2 - 2 AZ
0-1 Ruben Van Bommel ('14 )
0-2 Seiya Maikuma ('19 )
1-2 Ivaylo Chochev ('61 )
2-2 Kwadwo Duah ('63 )
Malmo FF 2 - 2 Galatasaray
1-0 Erik Botheim ('24 )
1-1 Elias Jelert ('43 )
1-2 Yunus Akgun ('56 )
2-2 Sergio Pena ('90 )
Olympiakos 0 - 0 Twente
0-0 Ricky van Wolfswinkel ('9 , Misnotað víti)
0-0 Ayoub El Kaabi ('40 , Misnotað víti)
PAOK 5 - 0 Ferencvaros
1-0 Taison ('10 )
2-0 Brandon Thomas ('29 )
3-0 Fedor Chalov ('76 )
4-0 Andrija Zivkovic ('80 , víti)
5-0 Kiril Despodov ('89 )
Roma 3 - 0 Braga
1-0 Lorenzo Pellegrini ('11 )
2-0 Saud Abdulhamid ('47 )
3-0 Mario Hermoso ('90 )
Rautt spjald: Matheus, Braga ('68)
Hoffenheim 0 - 0 Steaua
St. Gilloise 2 - 1 Nice
1-0 Franjo Ivanovic ('33 )
1-1 Evann Guessand ('45 )
Plzen 1 - 2 Manchester Utd
1-0 Matej Vydra ('48 )
1-1 Rasmus Hojlund ('62 )
1-2 Rasmus Hojlund ('88 )
