Fotbolti.net
13.01.18 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arda Turan farinn á löngum lánssamningi (Staðfest)

Arda Turan hefur yfirgefið Barcelona

Arda Turan hefur yfirgefið Barcelona

Canon

Mynd: Getty Images

Arda Turan hefur yfirgefið Barcelona og hefur gengið til liðs við toppliðið í Tyrklandi, Istanbul Basaksehir.

Hinn þrítugi Arda Turan gekk í raðir Börsunga árið 2015 eftir góðan tíma hjá Atletico Madrid.

Hann hefur ekki átt jafngóðan tíma hjá Barcelona og hefur lítið fengið að spila í Katalóníu.
Nú hefur hann loksins yfirgefið Barcelona, en hann fer á láni til Basaksehir í tvö og hálft ár.

Þegar lánssamningum lýkur er samningi Turan hjá Barcelona einnig lokið. Barcelona hefur þann möguleika að selja hann ef tilboð berst í hann á meðan hann er í láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.