Samuel Kroon er genginn í raðir KA og skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Hann er annar leikmaðurinn sem KA tilkynnir í dag því í morgun var opinberað að Danijel Dejan Djuric væri búinn að gera þriggja ára samning við félagið.
Hann er annar leikmaðurinn sem KA tilkynnir í dag því í morgun var opinberað að Danijel Dejan Djuric væri búinn að gera þriggja ára samning við félagið.
Samuel sem er 29 ára gamall Svíi sem getur bæði leikið sem kantmaður og bakvörður. Hann var síðast á Örebro í Svíþjóð en varð samningslaus í vetur. Hann á að baki yfir hundrað leiki í næstefstu deild Svíþjóðar og yfir 30 í sænsku úrvalsdeildinni. Samkvæmt Transfermarkt hefur hann skoraði 36 mörk í 246 leikjum og lagt upp 35 mörk á sínum meistaraflokksferli.
Miðað við slúðrið undanfarna daga eru KA menn ekki hættir á markaðnum. KA hefur verið orðað við miðvörðinn Ara Leifsson, Tarik Ibrahimagic hjá Víkingi, og einnig hefur verið slúðrað um að félagið ætli sér að fá inn framherja fyrir mót.
Úr tilkynningu KA
Samuel gengur í raðir KA frá sænska liðinu Örebro en þar hafði hann leikið frá árinu 2023, með Örebro lék hann 71 leik og gerði í þeim 9 mörk en flestir leikirnir komu í sænsku Superettan deildinni. Hann hefur leikið allan sinn feril í Svíþjóð en fyrir komu sína í Örebro lék hann í Allsvenskan, efstu deild í Svíþjóð, með liðum IF Brommapojkarna og Halmstads BK. Þá hefur hann einnig leikið með Umeå FC, Nyköpings BIS og Bele Barkarby FF.
Það verður virkilega gaman að sjá hvernig Samuel smellur inn í lið KA en Samuel er fjölhæfur leikmaður sem eins og áður segir getur bæði leikið sem kantmaður og bakvörður. Það er ljóst að koma hans mun styrkja hópinn fyrir komandi átök og ætlumst við til mikils af þessum öfluga kappa í gula og bláa búningnum en fyrsti leikur KA í Bestudeildinni í sumar er 12. apríl næstkomandi þegar strákarnir okkar taka á móti Stjörnunni á Greifavellinum.
Komnir
Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Samuel Kroon frá Svíþjóð
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Farnir
Ívar Örn Árnason í Breiðablik
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
Andri Fannar Stefánsson
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Svíþjóðar
Athugasemdir



