Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
   lau 13. apríl 2019 13:22
Arnar Helgi Magnússon
England: Moura fór illa með Huddersfield
Tottenham 4 - 0 Huddersfield
1-0 Victor Wanyama ('24 )
2-0 Lucas Moura ('27 )
3-0 Lucas Moura ('87 )
4-0 Lucas Moura ('90 )

Fallið Huddersfield var engin fyrirstaða fyrir Tottenham þegar liðin mættust í London í dag.

Það tók Tottenham tæpar 25 mínútur að ná forystunni. Þar var að verki miðjumaðurinn Victor Wanyama þegar hann fór framhjá Ben Hamer í marki Huddersfield og setti boltann í autt markið, mjög svo snyrtilegt.

120 sekúndum síðar tvöfaldaði Lucas Moura forskot Tottenham með föstu skoti eftir sendingu frá Moussa Sissoko. Lucas Moura var ekki búinn að syngja sitt síðasta í leiknum.

Huddersfield fékk nokkur færi til þess að klóra í bakkann í síðari hálfleik en það tókst ekki. Lucas Moura refsaði og skoraði sitt annað mark og þriðja mark Tottenham á 87. mínútu eftir fyrirgjöf frá Christian Eriksen.

Brasilíumaðurinn fullkomnaði þrennu sína í uppbótartíma þegar að hann setti boltann í netið eftir sendingu frá Heung-Min Son. Geggjaður dagur fyrir Moura!

Með sigrinum er Tottenham komið upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 4 4 0 0 9 4 +5 12
2 Arsenal 4 3 0 1 9 1 +8 9
3 Tottenham 4 3 0 1 8 1 +7 9
4 Bournemouth 4 3 0 1 6 5 +1 9
5 Chelsea 4 2 2 0 9 3 +6 8
6 Everton 4 2 1 1 5 3 +2 7
7 Sunderland 4 2 1 1 5 3 +2 7
8 Man City 4 2 0 2 8 4 +4 6
9 Crystal Palace 4 1 3 0 4 1 +3 6
10 Newcastle 4 1 2 1 3 3 0 5
11 Fulham 4 1 2 1 3 4 -1 5
12 Brentford 4 1 1 2 5 7 -2 4
13 Brighton 4 1 1 2 4 6 -2 4
14 Man Utd 4 1 1 2 4 7 -3 4
15 Nott. Forest 4 1 1 2 4 8 -4 4
16 Leeds 4 1 1 2 1 6 -5 4
17 Burnley 4 1 0 3 4 7 -3 3
18 West Ham 4 1 0 3 4 11 -7 3
19 Aston Villa 4 0 2 2 0 4 -4 2
20 Wolves 4 0 0 4 2 9 -7 0
Athugasemdir
banner