Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 22:18
Ívan Guðjón Baldursson
Carrick fokillur: Ein versta ákvörðun sem ég hef séð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Carrick bráðabirgðaþjálfari Manchester United var brjálaður eftir tap gegn Leeds United á Old Trafford í kvöld.

Leeds komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik og er Carrick ósáttur með fyrra markið sem kom eftir umdeilt atvik innan vítateigs. Leny Yoro ætlaði að skalla boltann í burtu en Dominic Calvert-Lewin kom fljúgandi á hann og fór með upphandlegginn í hausinn á varnarmanninum. Boltinn barst út til Noah Okafor sem skoraði og fékk markið að standa.

Sjáðu markið

   13.04.2026 20:56
England: Tíu leikmenn United óheppnir að tapa


„Við byrjuðum leikinn ekki sérlega vel, Leny Yoro fær upphandlegg aftan á hnakkann og þeir skora fyrsta markið. Dómararnir ákváðu ekki að vera að breyta þeirri ákvörðun," sagði Carrick. „Við fundum ekki taktinn í fyrri hálfleik. Við áttum nokkrar fínar rispur en við vorum frábærir í seinni hálfleiknum."

Lisandro Martínez fékk beint rautt spjald í seinni hálfleik fyrir að toga í hárið á Calvert-Lewin eftir skallaeinvígi og vill Carrick meina að það hafi verið ein versta dómaraákvörðun sem hann hafi séð á löngum fótboltaferli.

„Strákarnir mættu grimmir í seinni hálfleikinn og ég er svo stoltur af því hvernig þeir brugðust við rauða spjaldinu eftir þessa ótrúlegu, ótrúlegu ákvörðun. Þetta er annar leikurinn í röð sem við fáum svona ákvörðun gegn okkur en þetta er ein versta ákvörðun sem ég hef séð.

„Það er ekkert mál (fyrir Calvert-Lewin) að olnboga Leny Yoro í fyrsta markinu og svo er ekkert mál að setja handlegginn í andlitið á Martínez. Þetta tekur hann úr jafnvægi í loftinu og á leiðinni til jarðar rétt svo snertir hann hárið á honum í tilraun til að rétta sig við. Það veldur því að snúðurinn í hárinu losnar og hann fær rautt spjald.

„Ég er búinn að sjá þetta aftur og hann er ekki að toga í hárið eða að reita það. Þetta er ekki aggressívt, hann rétt snertir hárið hans og fær rautt spjald. Það versta við þetta allt saman er að dómarinn fór í skjáinn til að skoða þetta. Þetta er sláandi ákvörðun."


   13.04.2026 20:19
Sjáðu atvikið: Lisandro Martínez fékk beint rautt

Slapp
banner
banner