Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
England: Tíu leikmenn United óheppnir að tapa
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Manchester Utd 1 - 2 Leeds
0-1 Noah Okafor ('5 )
0-2 Noah Okafor ('29 )
1-2 Casemiro ('69 )
Rautt spjald: Lisandro Martinez, Manchester Utd ('56)

Manchester United lenti undir snemma leiks gegn Leeds United er liðin áttust við á Old Trafford í dag. Noah Okafor skoraði eftir fyrirgjöf þegar Noussair Mazraoui steingleymdi sér í varnarleiknum og tvöfaldaði hann svo forystuna eftir mikinn skallatennis síðar í hálfleiknum.

Boltinn endaði hjá Okafor rétt fyrir utan vítateigslínuna og ákvað hann að láta vaða með viðstöðulausu skoti. Marktilraunin fór af Leny Yoro svo boltinn breytti um stefnu og endaði í netinu.

Leeds var sterkara liðið í fyrri hálfleik og hefði getað bætt mörkum við en tókst ekki. Staðan var 0-2 í leikhlé og bauluðu stuðningsmenn Man Utd á sína menn.

   13.04.2026 20:01
Baulað á Man Utd í hálfleik á Old Trafford


Rauðu djöflarnir mættu tvíefldir til leiks út í síðari hálfleikinn og komust nálægt því að minnka muninn áður en Lisandro Martínez fékk að líta beint rautt spjald fyrir að toga í hárið á Dominic Calvert-Lewin.

   13.04.2026 20:19
Sjáðu atvikið: Lisandro Martínez fékk beint rautt


Rauða spjaldið virtist ekkert gera nema auka ákefð heimamanna sem tóku gjörsamlega öll völd á vellinum í gríðarlega hröðum og skemmtilegum seinni hálfleik.

United fékk góð færi til að minnka muninn áður en Casemiro skoraði með skalla á 69. mínútu. Áfram héldu yfirburðir tíu leikmanna United, sem virtust vera manni fleiri frekar heldur en manni færri, en einhvern veginn rataði boltinn ekki í netið.

Karl Darlow átti góðar vörslur og björguðu leikmenn Leeds á köflum meistaralega. Lokatölur urðu því 1-2 fyrir Leeds þrátt fyrir ótrúlegan sóknarþunga tíu leikmanna Man Utd í seinni hálfleik.

Þetta eru afar dýrmæt stig fyrir Leeds sem er núna sex stigum frá fallsvæðinu.

Man Utd er áfram í góðri stöðu í baráttunni um meistaradeildarsæti.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner