Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild Asíu: Firmino hjálpaði að slá Al-Hilal úr leik
Mahrez hetjan í naumum sigri Al-Ahli
Mynd: Al Hilal
Mynd: Al Sadd
Mynd: EPA
Sádi-arabísku stórveldin Al-Ahli og Al-Hilal lentu í vandræðum í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Asíu.

Bæði mættu þau andstæðingum frá Katar í úrslitakeppninni sem fer fram í Sádi-Arabíu. Al-Ahli þurfti framlengingu gegn Al-Duhail á meðan Al-Hilal datt afar óvænt úr leik gegn Al-Sadd.

Lærlingar Simone Inzaghi í Al-Hilal náðu forystunni í þrígang, en alltaf tókst andstæðingunum að jafna. Stórstjörnur voru á skotskónum í báðum liðum.

Sergej Milinkovic-Savic og Marcos Leonardo voru meðal markaskorara Al-Hilal og áttu Theo Hernández, Rúben Neves og Karim Benzema stoðsendingar.

Það dugði þó ekki til útaf því að Claudinho skoraði og lagði upp fyrir gestina áður en Roberto Firmino setti jöfnunarmarkið. Lokatölur urðu 3-3 og því var gripið til framlengingar.

Al-Sadd var sterkari aðilinn í venjulegum leiktíma þrátt fyrir að hafa lent undir þrisvar sinnum, en Al-Hilal tók öll völd á vellinum í framlengingunni. Þeim tókst þó ekki að skora svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.

Firmino byrjaði vítakeppnina á því að klúðra en svo brenndu Karim Benzema og Saimon Bouabre af í liði Al-Hilal á meðan allir aðrir leikmenn skoruðu.

Al-Sadd fer því óvænt áfram í 8-liða úrslitin og mætir japanska stórveldinu Vissel Kobe þar.

Mohamed Camara, fyrrum leikmaður AS Mónakó, og Romain Saïss, fyrrum leikmaður Wolves, voru einnig í byrjunarliði Al-Sadd ásamt Paul Otávio, fyrrum leikmanni Wolfsburg, og Rafa Mujica sem er uppalinn hjá Barcelona.

Al-Ahli keppti þá við Al-Duhail og var staðan markalaus eftir tíðindalitlar 90 mínútur. Í framlengingunni fékk Ivan Toney kjörið tækifæri til að ná forystunni en hann klúðraði úr vítaspyrnu. Þegar allt stefndi í vítaspyrnukeppni tókst Riyad Mahrez að skora það sem reyndist sigurmarkið á 117. mínútu.

Al-Ahli spilar við Johor DT frá Malasíu í 8-liða úrslitum.

Édouard Mendy, Franck Kessie, Enzo Millot og Galeno voru meðal byrjunarliðsmanna í liði Al-Ahli.

Al-Duhail er einnig með öfluga leikmenn innanborðs sem léku með liðum á borð við Leicester, Real Betis, Eintracht Frankfurt og AC Milan á dvöl sinni í Evrópu.

Þar má helst nefna Krzysztof Piatek og Boubakary Soumaré.

Al-Hilal 3 - 3 Al-Sadd
1-0 Sergej Milinkovic-Savic ('29)
1-1 Claudinho ('36)
2-1 Salem Al-Dawsari ('55)
2-2 Rafa Mujica ('58)
3-2 Marcos Leonardo ('67)
3-3 Roberto Firmino ('70)
3-4 í vítaspyrnukeppni

Al-Ahli 1 - 0 Al-Duhail
0-0 Ivan Toney, misnotað víti ('105+7)
1-0 Riyad Mahrez ('117)
Slapp
banner
banner