Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. maí 2019 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Fletcher leggur skóna á hilluna og fer til Man Utd
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Darren Fletcher, fyrrverandi miðjumaður Manchester United, muni ganga aftur í raðir félagsins í sumar.

Fletcher er 35 ára gamall og hefur ekki fengið mikinn spiltíma með Stoke í Championship deildinni. Sky heldur því fram að skoski landsliðsmaðurinn muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið og hefja störf sem tæknilegur ráðgjafi hjá Rauðu djöflunum.

Í tilfelli Man Utd er hlutverk tæknilegs ráðgjafa að starfa náið með aðalþjálfaranum, Ole Gunnar Solskjær, og vera hans helsta tenging við stjórn félagsins.

Paul Mitchell, yfirmaður leikmannakaupa hjá RB Leipzig, hefur einnig verið orðaður við stöðuna sem og Rio Ferdinand.
Athugasemdir
banner
banner