Luton 1 - 1 Huddersfield
0-1 Daniel Sinani('12)
1-1 Sonnyu Bradley('30)
Það er enn mikil spenna í Championship-deildinni þar sem fjögur lið berjast um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrsti leikurinn í undanúrslitum umspilsins var spilaður í kvöld er Luton og Huddersfield mættust á heimavelli þess fyrrnefnda.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli að þessu sinni en Huddersfield tók forystuna snemma leiks áður en heimaliðið jafnaði með marki á 30. mínútu.
Heilt yfir var þessi leikur nokkuð jafn og ljóst að það er enn allt undir þegar liðin mætast í seinni leiknum á heimavelli Huddersfield.
Sheffield United og Nottingham Forest mætast í hinum undanúrslitunum og fer sá leikur fram á morgun.
Athugasemdir