Fotbolti.net
13.05.26 - 07:45
Elvar Geir Magnússon

Þessir dæma bikarleikina - Ívar Orri í Garðabæ

Ívar Orri dæmir leik Stjörnunnar og KR.

Ívar Orri dæmir leik Stjörnunnar og KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Það er komið að 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins sem verða leikin í dag og á morgun.

Umferðin hefst með áhugaverðum leik í Laugardal þar sem topplið Þróttar í Lengjudeildinni fær Breiðablik í heimsókn. Þórður Þorsteinsson Þórðarson dæmir leikinn.

Meðal annarra leikja annað kvöld er stórleikur Stjörnunnar og KR en Vesturbæingar unnu endurkomusigur þegar liðin áttust við síðasta föstudag í Bestu deildinni. Ívar Orri Kristjánsson dæmir leikinn; Birkir Sigurðarson og Kristján Már Ólafs eru aðstoðardómarar og Jóhann Ingi Jónsson fjórði dómari.

Uppstigningardagur er á morgun og þá verða þrír leikir. Þar á meðal er viðureign ríkjandi bikarmeistara Vestra gegn Gróttu sem Jóhann Ingi dæmir. Þá leika Fylkir og FH þar sem Heimir Guðjónsson fær gesti sem hann þekkir ansi vel. Gunnar Freyr Róbertsson dæmir þann leik.
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Heimir mætir FH og Jökull á síðasta séns?
TENGT EFNI

Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Heimir mætir FH og Jökull á síðasta séns?

Hér má sjá hverjir dæma leiki 16-liða úrslita Mjólkurbikarsins:

miðvikudagur 13. maí
17:30 Þróttur R.-Breiðablik (Þórður Þorsteinsson Þórðarson)
19:15 HK-Víkingur R. (Arnar Þór Stefánsson)
19:15 Afturelding-Njarðvík (Elías Ingi Árnason)
19:15 ÍA-Grindavík (Vilhjálmur Alvar Þórarinsson)
20:00 Stjarnan-KR (Ívar Orri Kristjánsson)

fimmtudagur 14. maí
14:00 KA-Ægir (Twana Khalid Ahmed)
14:00 Vestri-Grótta (Jóhann Ingi Jónsson)
15:00 Fylkir-FH (Gunnar Freyr Róbertsson)
Gunnar Freyr dæmir í Árbænum.

Gunnar Freyr dæmir í Árbænum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.