Fotbolti.net
13.07.25 - 13:41
Elvar Geir Magnússon

Göngin verða lokuð eftir leik ÍA og KR

Siggi Helga þarf að keyra Hvalfjörðinn annað kvöld.

Siggi Helga þarf að keyra Hvalfjörðinn annað kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður löng bílferð heim fyrir fótboltaáhugafólk á höfuðborgarsvæðinu sem ætlar á leik ÍA og KR í Bestu deildinni annað kvöld. Búið verður að loka Hvalfjarðargöngunum þegar leik lýkur og þá verður að keyra Hvalfjörðinn.
Malbika á hringtorg við Akrafjallsveg og um 500 m kafla niður að göngunum í báðar áttir. Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að framkvæmdirnar munu standa frá klukkan 20:00 annað kvöld til klukkan 7:00 þriðjudagsmorgun. Hvalfjarðargöngum verður lokað í báðar áttir en hjáleið verður um Hvalfjörðinn.

Vísir fjallar um málið og segir að Sigurður Helgason hafi vakið athygli á þessu í stuðningsmannahópi KR á Facebook.

Í frétt Vísis segir að stuðningsmenn KR ætli í rútuferð á Skagann frá en ljóst er að þeir munu koma seinna í bæinn en áætlað var. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fallbaráttuslagur milli þessara gömlu stórvelda.

Næstu leikir í Bestu deildinni:

sunnudagur 13. júlí
16:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)

mánudagur 14. júlí
18:30 ÍBV-Stjarnan (Hásteinsvöllur)
19:15 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.