Fotbolti.net
13.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Benfica kaupir þrjá fyrir 60 milljónir (Staðfest)

Benfica kaupir þrjá fyrir 60 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Portúgalska stórveldið Benfica er að styrkja sig fyrir komandi átök í efstu deild undir stjórn Marco Silva og er búið að kaupa þrjá leikmenn fyrir um 60 milljónir evra í heildina.
Benfica endaði í þriðja sæti á síðustu leiktíð þrátt fyrir að fara taplaust í gegnum deildartímabilið undir stjórn José Mourinho, sem var keyptur yfir til Real Madrid fyrr í sumar.

Benfica byrjaði sumarið á að kaupa úkraínska landsliðsmanninn Heorhiy Sudakov, sem er 23 ára gamall og kostaði um 30 milljónir evra í heildina þegar lánskostnaðurinn er talinn með. Sudakov er sóknarsinnaður miðjumaður með 36 landsleiki að baki fyrir Úkraínu þrátt fyrir ungan aldur.

Hann gerir þriggja ára samning við Benfica og heldur Shakhtar 25% af hagnaði af endursölu leikmannsins. Sudakov kom með beinum hætti að 6 mörkum í 22 deildarleikjum með Benfica í fyrra.

Jakub Kaminski og Enzo Barrenechea eru einnig komnir til Benfica og gera þeir fimm ára samninga. Kaminski er 24 ára kantmaður frá Póllandi sem skoraði 7 mörk og gaf 5 stoðsendingar með Köln í efstu deild þýska boltans á síðustu leiktíð.

Þar var Kaminski liðsfélagi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar og kostar hann 17 milljónir. Köln heldur þar að auki 10% af hagnaði af endursölu á honum, en Kaminski er með 31 landsleik að baki fyrir Pólland.

Barrenechea er varnartengiliður sem kemur úr röðum Aston Villa og kostar um 12 milljónir í heildina. Hann lék á láni með Benfica á síðustu leiktíð líkt og Sudakov.
Benfica kaupir þrjá fyrir 60 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Benfica kaupir þrjá fyrir 60 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.